
Hosted by Dale Carnegie podcastið / Ísland · IS

Í þessum þætti kom Nína Dögg í heimsókn til mín í skemmtilegt, einlægt og persónulegt spjall. Nína er 22 ára nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands og hefur mikinn áhuga á mannlegum samskiptum, persónulegum þroska og velferð fólks. Hún brennur fyrir því að hjálpa öðrum og stefnir á að gera það að lífsstarfi sínu. Meðfram náminu starfar hún einnig á elliheimili þar sem hún fær tækifæri til að sýna umhyggju sína og hjálpa eldri borgurum. Við ræddum meðal annars hvernig hún tókst á við félagskvíða sinn þegar hún flutti frá Höfn í Hornafirði til Hafnarfjarðar og hóf nám í Flensborg aðeins 17 ára gömul. Nína segir frá þeim áskorunum sem fylgdu þessari miklu breytingu og hvernig hún lærði smám saman að stíga út fyrir þægindahringinn og treysta sjálfri sér betur. Við fórum einnig inn á mikilvægi fyrirmynda í lífi okkar, hvernig sterk gildi geta mótað okkur sem einstaklinga og hvernig við getum nýtt okkur hrós og jákvæð samskipti til að efla bæði sjálfstraust og samskipti við fólkið í kringum okkur. Nína leggur áherslu á að umkringja sig vinum sem lyfta henni upp, styðja hana og hafa jákvæð áhrif á hana. Hún lýsir því sjálf að hún nálgist vinasambönd nánast eins og hún sé að taka fólk í atvinnuviðtal, þar sem hún velur vandlega hverja hún hleypir nálægt sér. Hlökkum til að heyra hvað þér finnst um þáttinn!

Brynja Ploy er sálfræðinemi sem hóf vegferð sína í sálfræði með það markmið að lækna sjálfa sig. Hún er ótrúlega fyndin og það væri algjörlega þess virði að sjá hana á uppistandi!Brynja hefur sótt Dale Carnegie námskeiðið tvisvar sinnum og verið aðstoðarmaður þrisvar sinnum. Áður vildi hún klára kynningar eins fljótt og auðið var, en í dag nýtur hún þess að tala fyrir framan fólk. Með þjálfun og réttu hugarfari hefur hún umbreytt kvíða í styrkleika.Í þættinum ræðum við hvernig hún nýtir verkfæri úr Dale Carnegie námskeiðinu í daglegu lífi sínu og námi. Hún leggur mikla áherslu á að hlusta af einlægni og muna það sem fólk segir – þar með talið nöfn. Að muna nöfn er lykilatriði í góðum samskiptum, og Brynja deilir frábærum aðferðum til að þjálfa sig í því. Að gefa sér tíma til að læra og nota nöfn annarra getur styrkt tengsl og byggt traust í samskiptum.Brynja setur sér markmið á einstakan hátt, sem ég sjálf ætla að nýta mér. Það er ótrúlega hvetjandi að heyra hana tala um hvernig hún skapar sér skýra framtíðarsýn og leggur sig fram um að gefa sér sjálfri tækifæri.Hvet þig, kæri hlustandi, til að prófa þetta sjálf(ur) – gefðu þér tækifæri!

Hvernig breytir maður lífi sínu með því að opna sig fyrir nýjum áskorunum? Arnar Páll, Keflvíkingur og viðskiptafræðingur, fór í gegnum spennandi þróunarferli sem hann deilir með okkur í þessum þætti. Hann starfaði lengi á sama vinnustað, þar til Covid breytti öllu. Það var vendipunktur – en hvað tók við?Arnar leitaði til vinar síns um ráð og í kjölfarið sótti hann bæði Dale Carnegie námskeiðið og Leiðtogafærni, þar sem hann varð síðar aðstoðarmaður þrisvar sinnum. Í dag starfar hann hjá Hópbílum og hefur dýrmæta reynslu af því hvernig menningarmunur getur haft áhrif á vinnustaði. En hvernig berum við okkur að í fjölbreyttu starfsumhverfi?Arnar er með bráðaofnæmi fyrir óheiðarleika og ræðum við hversu mikilvægt það er fyrir stjórnendur að mynda traust.Einnig ræðum við um það að hugsa standandi – hvernig það nýtist í starfi og einkalífi. Að geta verið fljótur að hugsa og bregðast við er lykilatriði, en hvernig þjálfar maður sig í því?🎧 Ekki láta þennan þátt fram hjá þér fara! Uppgötvaðu hvernig þú getur byggt upp traust, orðið hraðari í hugsun og þróað þig sem leiðtoga – bæði í starfi og einkalífi.

Í þessum líflega og hvetjandi þætti spjöllum við hana Ylfu Rán, laganema á þriðja ári við Háskóla Íslands. Ylfa er einstaklega drífandi manneskja sem lætur hvorki ADHD né lesblindu stoppa sig í að ná markmiðum sínum. Hún kláraði sitt fyrsta (en örugglega ekki síðasta!) Dale Carnegie námskeið í fyrra og fór beint í að vera aðstoðarmaður eftir það – sannkölluð fyrirmynd í að grípa tækifærin!En hvers vegna myndi einhver sem er svona opin og félagslynd fara á Dale Carnegie námskeið? Í þættinum deilir Ylfa reynslu sinni af námskeiðinu og hvernig það hefur styrkt hana enn frekar í samskiptum. Hún hefur sannarlega masterað listina að hefja og halda uppi samræðum við fólk!Við spjöllum einnig um seigluna sem hún sýndi þegar hún tók menntaskólann á methraða, mikilvægi þess að sýna öðrum einlægan áhuga og kraftinn sem felst í jákvæðu hugarfari. Þvílíkur sólargeisli sem hún er!Ef þú vilt fá innblástur, frábær ráð um samskipti og heyra frá einstakri manneskju sem lætur ekkert stoppa sig – þá er þessi þáttur fyrir þig!

Í þessum þætti hittum við Uroš, 30 ára gamlan verkefnastjóra sem flutti frá Serbíu til Íslands sumarið 2003. Hann hefur lokið MSc-gráðu í verkefnastjórnun og starfar hjá Nemendaráðgjöf HÍ.Uroš er mikill bókaunnandi og elskar bæði fræðilegan lestur og yndislestur. Hann hefur einnig brennandi áhuga á ræktinni og matargerð – sérstaklega eftir að hann fjárfesti í Airfryer! 😄Vorið 2024 sótti hann Dale Carnegie-námskeiðið, þar sem hann fékk með sér dýrmæt verkfæri til að efla sjálfstraust sitt, standa fastar með sjálfum sér og tjá sig af öryggi. Hann segir að námskeiðið hafi hjálpað sér að bæta færni sína í kynningum, samskiptum og að takast á við streitu – sem hefur skilað sér í betri líðan og meiri árangri.Í þættinum spjöllum við um áskoranir þess að vera útlendingur á Íslandi, hvernig Uroš hefur tekist á við fordóma með jákvæðu hugarfari og gert besta úr aðstæðum.Hans skilaboð til þín?Ekki hika við að taka af skarið, skrá þig á námskeið og stíga út fyrir þægindarammann – hvað er það versta sem gæti gerst?

Í þessum þætti fáum við að kynnast Köru Hólm, Dale Carnegie þjálfara sem hefur skapað sér einstakt viðhorf og nálgun á lífið. Kara rekur sjálfa sig eins og stórt fyrirtæki og trúir því að það skipti öllu máli að vera með sjálfan sig í liði. „Ef þú ert ekki með þér í liði, þá er enginn með þér í liði.“ Hún er keppnismanneskja inn að beini og hefur alltaf þorað að stíga út fyrir þægindarammann. Kara er óhrædd við að prófa nýja hluti og segir að það sé lykillinn að því að vaxa og ná árangri. Hún er alltaf með eitthvað í gangi og lifir lífinu af krafti – hjá henni er aldrei dauð stund. Í þættinum ræðum við það sem Kara stendur fyrir: drifkraft, hugrekki og mikilvægi þess að trúa á sjálfan sig. Hún deilir hugsunum sínum og reynslu sem hafa hjálpað henni að halda áfram, sama hvaða áskoranir mæta henni.

„Tíminn er núna!“ – Indíana hvetur þig til að grípa gæsina.Í þessum þætti spjöllum við við Indíönu Líf, forritara hjá 50skills og fyrrum þátttakanda á Dale Carnegie námskeiði fyrir 20-25 ára og svo síðar varð hún aðstoðarmaður á námskeiði. Hún deilir með okkur reynslu sinni af því að fara ótroðnar slóðir og við komumst einnig af því að ef flétt er uppi orðinu Indíana í orðabók, þá birtist orðið hugrekki. Eldmóður, markmiðasetning og að taka ábyrgð á eigin lífi hafa einkennt hennar vegferð. Indíana segir frá því hvernig hún lærði að ná tökum á heilanum þegar hann vill flýja aðstæður og hvernig hún lætur verkin tala. Hún minnir okkur á að framtíðin byggist á því sem við gerum núna! Ef þú ert tilbúin/n að hætta að hugsa og byrja að framkvæma, þá er þetta þátturinn fyrir þig. Nýtt ár býður upp á óteljandi tækifæri. Þáttastjórnandi: Jóna Dóra📧 jonadora@dale.is | 📞 845-3150

„Þetta er erfitt núna og þetta mun verða mun verra áður en það verður betra.“ Í þessum podcast-þætti opnar Viðar sig um erfiða reynslu sína af því að missa barn sitt, áhrif þess á líf hans og hvernig hann hefur unnið úr sorginni. Viðar lýsir hvernig gildi hans breyttust í kjölfar missisins og hvernig hann reynir að halda minningu dóttur sinnar á lofti. Þátturinn veitir innsýn í hvernig það er að upplifa slíkan missi og hvernig aðrir geta sýnt stuðning á þessum erfiðu tímum. Með þátttöku í Gleym Mér Ei - Styrktarfélag vinnur Viðar að því að varðveita minningar og styðja aðra sem hafa upplifað svipaða reynslu. Þetta er áhrifamikill þáttur sem snertir hjörtu og vekur fólk til umhugsunar um lífið, gildin og hvernig við getum staðið með öðrum á erfiðum tímum. *Hundurinn minn, Viddi var með okkur í upptöku, hann hrýtur smá (ekki hafa áhyggjur, þetta er ekki prump...)

Viðar Pétur Styrkársson er menntaður verkfræðingur sem starfar hjá Advania og sérhæfir sig í verkefnum tengdum gervigreind. Auk þess hefur hann um árabil verið þjálfari ungs fólks og fullorðinna og er með réttindi til að þjálfa grunnnámskeið Dale Carnegie fyrir alla aldurshópa, ásamt námskeiðinu Áhrifaríkar kynningar.

Auður Bríet er tvítug og starfar hjá Hrafnistu í dag. Hún útskrifaðist úr fatahönnunarbraut frá FG í vor og stefnir á frekara nám í fatahönnun við háskóla í Hollandi. Auður hefur farið 3x á Dale Carnegie námskeið fyrir ungt fólk þ.e.a.s. 10-12 ára námskeið, 13-15 ára námskeið og svo 16-19 ára námskeið. Einnig sótti hún námskeiðið ,,Næsta kynslóð leiðtoga” og hefur verið aðstoðarmaður tvisvar sinnum. Auður Bríet er lýsandi dæmi um að vera opin fyrir því að vaxa og stækka. Hún sér tækifærin og stekkur á þau. Auður er manneskja sem þorir að vera hún sjálf, fara sína eigin leið. Jákvæðni og útgeislun eru meðal styrkleika hennar. Eftir að hafa sótt námskeið hjá Dale Carnegie upplifir hún að hún er rík af góðum verkfærum til þess að viðhalda jákvæða viðhorfi sínu ásamt samskiptafærninni. Einnig er hún dugleg að minna sig á að fara út fyrir þægindarammann reglulega til þess að auka sjálfstraustið alltaf enn meira.