
Hosted by Ghost Network® · IS

Eigum við okkur öll tvífara? Einhver sem gengur um á jörðinni sem er alveg eins en hefur ekki hugmynd um það?Í þessum þætti ætlum við að tala um tvífara. Er þetta fyrirbæri bara algjörlega tilviljunarkennt eða er eitthvað yfirnáttúrulegt á bakvið það?Paul McCartney lenti í slæmu bílslysi Þegar Bítlarnir voru á hátindi frægðar sinnar og vilja margir meina að hann hafi látist í slysinu og var fenginn tvífari til að taka við. Stórt samsærismál hefur verið um söngkonuna Avril Lavigne að hún hafi í raun látist ung og að tvífari hafi tekið hennar stað.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Í þessum áskriftarþætti ætlum við að tala um jörðina. Er jörðin stór blár hnöttur eða er hún mögulega eins og risastór pönnukaka með glerhvelfingu yfir sér? Er ísveggurinn á suðurpólnum að passa upp á að við förum ekki fram af jörðinni og leynast mögulega löngu horfnir mengingaheimar á bak við hann?Við ætlum að ræða allar þessar pælingar og margar fleiri Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Við vorum að keyra frá Blönduósi til Reykjavíkur og vorum í svo miklu stuði að ræða um allskonar yfirnáttúrulega hluti að við ákváðum að skella í þátt á leiðinni. Hljóðgæðin eru því ekki þau bestu, en þetta er hrár og ótrúlega skemmtilegur þáttur þar sem við ræðum um stóru spurninguna.....Voru risaeðlur mögulega bara drekar?Ef við setjum upp samsærisgleraugun og skoðum söguna út frá þeirri kenningu að risaeðlur og drekar hafi verið sama fyrirbærið, þá breytist opinbera tímalínan algjörlega. Samsæriskenningin gengur út á það að risaeðlur hafi ekki dáið út fyrir 66 milljónum ára, heldur hafi vísindasamfélagið hulið þann sannleika að menn og risaeðlur lifðu hlið við hlið fram á miðaldir og að þessi dýr hafi einfaldlega verið kölluð „drekar“.Sterkasta vopn þessarar kenningar er sú staðreynd að nánast allir menningarheimar sögunnar, sem höfðu engin samskipti sín á milli, eiga sjálfstæðar sögur og myndir af risavöxnum eðlum. Frá Kína til Evrópu, og frá frumbyggjum Ameríku til Egyptalands, teiknaði fólk skriðdýr með langa hálsa, sterka hala og ógnvænlegar klær löngu áður en nútíma steingerfingafræði hófst á 19. öld. Spurningin sem samsæriskenningamenn spyrja er: Hvernig gátu allar þessar ólíku þjóðir lýst sömu dýrunum svona nákvæmlega ef þær sáu þær aldrei lifandi?Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu til okkar í áskrift þar sem þú færð yfir 100 yfirnáttúrulega þætti!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Þórunn Kristín lýsir sér sjálfri sem rammíslenskri norn. Hún hefur iðkað þessi fræði lengi og er höfundur bókarinnar Nornin í þér þar sem hún deilir m.a. eigin reynslu og þeirri andlegu þekkingu sem hefur fylgt mönnunum í gegnum aldirnar.Við ræðum allt milli himins og jarðar, hvernig hún fann innri nornina í sér og hvað varð til þess að hún virkjaði næmnina og byrjaði að sjá heiminn í gegnum augu nornarinnar og svörum spurningunni hvað er að vera norn?Bókin er leiðarvísir sem á að hjálpa lesendum að finna sinn innri styrk, tengjast náttúrunni og hleypa „norninni“ innra með sér út. Þórunn lítur á nornir sem heilara, grasalækna og fólk sem vill skilja eftir sig fallegt ljós í heiminum. Í stað þess að fjalla um galdra sem einhverja óraunverulega bíómyndatöfra, kennir bókin hvernig hægt er að nýta ásetning, galdra og helgisiði við hversdagslegar athafnir til að bæta líf sitt og auka sjálfstraust.Nornin í þér er svo falleg bók sem allar nornir ættu að eiga!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdur

Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að tækninni sem gæti breytt mannkyninu að eilífu og byrjum á því að skoða Neuralink. Þetta fyrirtæki Elon Musk vinnur að því að græða örsmáan tölvukubb beint í mannsheilann, sem í fyrstu á að hjálpa lömuðu fólki en stefnir á að tengja huga okkar beint við stafræna heiminn. Hinn helmingurinn af þessari jöfnu er gervigreindin, eða AI, sem er að þróast á ógnarhraða og á samkvæmt Musk eftir að verða manninum yfirsterkari nema við finnum leið til að hugsa og vinna á ljóshraða með henni. Þegar þessi tvö risastóru öfl mætast kvikna hinar hrollvekjandi samsæriskenningar sem við ræðum í þættinum. Við veltum fyrir okkur hvort Neuralink og AI verði notuð af stórfyrirtækjum til að ná algjörri hugarstýringu og fylgjast með hverri einustu hugsun okkar, og spyrjum hvað gerist ef tölvuþrjótar geta bókstaflega „hakkað“ meðvitund fólks. Erum við að horfa á stærsta framfaraspor sögunnar eða upphafið að dökku tækniræði þar sem frjáls vilji heyrir sögunni til?Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Í dag ætlum við að kafa ofan í einn dularfyllsta og umtalaðasta stað jarðarinnar: CERN, Evrópsku kjarnorkurannsóknastofnunina í Sviss. Þar neðanjarðar hvílir stærsti eindahraðall heims, þetta eru 27 kílómetra löng rör ofan í jörðinni þar sem vísindamenn láta atóm rekast saman á nánast ljóshraða til að skilja uppruna alheimsins og finna hina svokölluðu „guðseind“.En einmitt vegna þess hve rannsóknirnar eru flóknar og framandi, hefur CERN orðið að algjörri gróðrarstíu fyrir villtar samsæriskenningar. Sú lífsegasta segir að verið sé að opna gáttir yfir í aðrar víddir eða samhliða alheima, sem sumir telja þessi vísindatilraun sé að breyta tímalínunni okkar og gæti verið útskýringin á Mandela-effekt. En aðrir óttast að tilraunirnar skapi svarthol sem gætu gleypt jörðina, eða að vísindamennirnir séu að fást við myrk andleg öfl en kenningarnar fengu rækilega byr undir vængi þegar stytta af hindúaguðinum Shiva, guði eyðingarinnar, var reist fyrir utan höfuðstöðvarnar.Hvaða áhrif ætli Cern hafi á jörðina og okkur mannfólkið? Nú hefur verið slökkt á þessu tæki vegna "viðhalds" næstu 4 árin...... og telja margir að það muni valda því að allskonar erfiðir atburðir munu eiga sér stað og að þetta hafi mun meiri áhrif á okkur en vísindamenn vilja meina.Þú getur hlustað á þáttinn í fullri lengd inn á Patreon með því að gerast áskrifandi.www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Í þessum þætti segir Selma okkur frá tónlistamanninum Oliver Tree en honum tengjast nokkrar samsæriskenningar.Hann reyndi að slíta sig lausan úr elítunni og um leið og hann náði að slíta plötusamningi sínum lést hann í furðulegu þyrluslysi.Oliver gaf út heimildamynd um Suðurskautslandið og dvaldi þar í rúmt ár og sagðist hafa séð ótrúlegustu hluti þar og ekki jarðneska!Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í ásrkiftwww.patreon.com/hidyfirnatturulega

Í þessum þætti ætlum við að ræða aðeins meira ýtarlega um hvað það er að falla í Trans hvort sem það ertengt miðlun eða heilun.Við ræðum örlítið ítarlegra okkar upplifun og svo fjöllum við einnig um nokkra fræga Trans miðla sem gerðu ótrúlega hluti í trans ástandi.Helen Duncan: Síðasta konan sem var dæmd fyrir að vera norn! Hún var öflugur transmiðill og svokallaður efnismiðill. Hún gat látið andana sem hún var að tengjast birtast fyrir framan sig og lenti í vandræðum þegar hún uppljóstraði óvart leynilegum hernaðar leyndarmálum.Chico Xavier Skrifaði 450 bækur á meðan hann var í Trans. Hann leysti meðal annars morðmál og var tilnefndur til Friðarverðlauna Nobels.Listinn yfir magna Transmilðla er klárlega langur og munum við eflaust taka fleirri þætti um þetta málefni.Komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Í þessum þætti fáum við að vita ALLT um Akashic skrárnar, hvernig þær virka og hvernig unnið er með að heila þær og okkur. Við erum báðar í heilunarmeðferð hjá Stellu þar sem hún skoðaði okkar Akashic skrár og förum við yfir hvernig þetta virkar allt saman. Að okkar mati er þetta mögnuð og heildræn heilun á fyrrilífum og karma.Akashic skráin þín, eða sálarbókin þín, er eins og lifandi gagnagrunnur sem inniheldur ekki aðeins upplýsingar um þitt núverandi líf, eða upplýsingar um öll þau líf sem þú hefur lifað í fortíðinni og/eða hvað þú ætlar þér í framtíðinni, heldur allar aðrar tímalínur, allar leiðir sem ekki hafa verið nýttar og öll möguleg tækifæri þar á milli.Akashic skrárnar eru geymdar í eins konar (orku) bókasafni, í 5. víddinni, með upplýsingum sem innihalda allar upplýsingar um sál þína og ferðalag hennar frá upphafi. Þær spanna fyrri líf, núverandi holdgervinga og framtíðarmöguleika.Ansi mörg okkar eru með einhverskonar stíflur,lokur eða hindranir sem gefa okkur ekki fulla yfirsýn yfir val og ákvarðanir okkar og/eða hegðun. Þessar lokur gætu hafa verið gagnlegar á einhverjum tímapunkti í lífi okkar til að dafna, líða vel eða hreinlega til að geta lifað af, en eins mikið og þeir hjálpuðu okkur á einum tímapunkti, gætu þeir verið að hindra okkur núna. Að fá lestur á Akashic skránum getur á gætilegan og kærleiksríkan hátt fjarlægt þessar lokur og stíflur og minnt þig á sannleikann þinn á þínu sálarstigi, hver þú ert í raun og veru, ekki hver þú varðst vegna þrýstings frá fólki og/eða samfélagi.Akashic skrárnar hjálpa þér að læra, að skilja og heila tilfinningalegan sársauka. Og þannig getur sálin losað sig við marga hlekki, skugga, strengi og annað slíkt sem heldur aftur af henni og haldið áfram að þroskast og þannig færst nær næstu orkuvídd í þroska.Þú getur bókað tíma í heilun hjá Stellu hér:https://akashicheilun.com/Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Hin magnaða Stella kom í viðtal til okkar alla leið frá Noregi. Hún er norn af guðs náð og hefur sankað að sér allskonar námi í andlegum málefnum gegnum tíðinaHún hefur lært Usui reiki, angelic reiki (englaheilun) og dreka- og einhyrningaheilun. Einnig les hún í Akashic skrárnar (alheimsskrár sálarinnar). Hún leggur og les í tarot spil, talnaspeki og pendúl. Hún er vægast sagt alger viskubrunnur og það er okkur heiður að fá að kafa ofan í hennar visku, fræðast og læra!Stella hefur alla tíð verið skygn og næm og kippir sér ekkert upp við það að sjá ljósveru standa yfir sér í sturtunni. Hún er tengd drekaorku og segir okkur allt um þetta í þessum þætti.Stella er alger kærleiskmoli, ljósvera og nærveran hennar er svo heilandi.https://akashicheilun.com/Fylgist með henni á Tiktok undir notendanafninu: 19stella75https://www.instagram.com/stellajorunn/Komdu í áskrift og fáðu enn meira yfirnáttúrulegt efni til að hlusta á og fræðast umwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarFáðu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt. Nýr þáttur alla mánudaga og ýmis aukaefni. GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift