
Hosted by Ghost Network® · IS

Hin magnaða Stella kom í viðtal til okkar alla leið frá Noregi. Hún er norn af guðs náð og hefur sankað að sér allskonar námi í andlegum málefnum gegnum tíðinaHún hefur lært Usui reiki, angelic reiki (englaheilun) og dreka- og einhyrningaheilun. Einnig les hún í Akashic skrárnar (alheimsskrár sálarinnar). Hún leggur og les í tarot spil, talnaspeki og pendúl. Hún er vægast sagt alger viskubrunnur og það er okkur heiður að fá að kafa ofan í hennar visku, fræðast og læra!Stella hefur alla tíð verið skygn og næm og kippir sér ekkert upp við það að sjá ljósveru standa yfir sér í sturtunni. Hún er tengd drekaorku og segir okkur allt um þetta í þessum þætti.Stella er alger kærleiskmoli, ljósvera og nærveran hennar er svo heilandi.https://akashicheilun.com/Fylgist með henni á Tiktok undir notendanafninu: 19stella75https://www.instagram.com/stellajorunn/Komdu í áskrift og fáðu enn meira yfirnáttúrulegt efni til að hlusta á og fræðast umwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkarFáðu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt. Nýr þáttur alla mánudaga og ýmis aukaefni. GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

hæÞað er allskonar stór undarlegt í gangi þessa dagana og er stemningin í loftinu bara pínu skrítin að okkar mati. Maður veit ekkert hverju maður á að trúa lengur og sögusagnir og samsæri spretta fram úr öllum áttum, geimveru fréttir hjá þingmönnum og opinberum starfsmönnum, svakaleg vakning og allskonar, það er eiginlega bara allt í gangi!Við förum um víðan völl í þessum þætti, ræðum m.a. samsæriskenningar um world cup sem var að byrja og þar eru heldur betur dramatískar kenningar sem spennandi verður að sjá hvort munu rætast eður ey. Við tökum öllu með fyrirvara en skemmtum okkur konunglega að ræða þessi stór undarlegu og yfirnáttúrulegu mál.Komdu í áskrift og fáðu þætti í hverru viku!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Arthur Findlay College sem er staðsettur í hinu glæsilega Stansted Hall á Englandi, er ekki aðeins þekktur fyrir kennslu í miðlun og andlegum málefnum heldur einnig fyrir að vera talið eitt af svokölluðum “hot spots” andlegra upplifana. Margir sem heimsækja staðinn lýsa honum sem „charged place“ eins og andrúmsloftið sé hlaðið sérstakri orku sem erfitt sé að útskýra.Í gegnum árin hafa nemendur og gestir sagt frá alls kyns furðulegum atvikum og upplifað allskonar skemmtilegan draugagang: ljós sem blikka án skýringar, skyndilegum kulda sem leggst yfir ákveðin svæði, óútskýrð hljóð og jafnvel húsgög sem hafa hreyfst af sjálfu sér. Aðrir hafa fundið fyrir nærveru ósýnilegra gesta eða séð skugga bregða fyrir.Við upplifðum allskonar yfirnáttúrulegt í skólanum og bekkjafélagar okkar urðu vitni af ótrúlegum draugagangi! Við segjum frá öllu þessu í þessum þætti.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Undanfarið hefur umræðan um UFO og opinbera birtingu og allskonar upplýsingar um geimverur aukist til muna, en á bak við tjöldin gæti verið að krauma dularfullt plan djúpríkisins og eru uppljóstrarar að segja að árið 2027 mun þetta "plan" koma upp á yfirborðið og þá hefst í raun leiksýningin.Það hefur verið talað um að djúpríkið sé búið að vera hægt og rólega að setja upp sviðsmynd og planta fræum í okkur "venjulega fólkið" og nú árið 2027 muni koma „innrás“ úr geimnum. Um er að ræða mögulega manngerða aðgerð þar sem valdamiklir aðilar nýta leynilega tækni (mögulega frá geimverum) til þess að sviðsetja alheimsógn úr geimnum.Markmiðið? Að skapa samfélagslegan ótta, sameina þjóðir undir eina stjórn og herða eftirlit með almenningi. Í þessum þætti skoðum við þetta og spyrjum okkur hvort árið 2027 verði stærsta tæknibrella sögunnar eða blákaldur veruleiki?Komdu í áskrift inn á www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Andleg árás kemur fyrir flesta hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Það er mikilvægt að þekkja merkin og ná að breyta þessari neiðkvæðu orku áður en það nær tökum á þér.Þegar fólk byrjar að vakna andlega, styrkja innsæið sitt og tengjast hærri orku er oft sagt að það geti orðið næmara fyrir neikvæðum áhrifum sem reyna að skapa ótta, efa og orkuleysi.Andleg árás getur byrjað sem neikvæðar hugsanir, sjálfsefi, kvíði eða tilfinning eins og allt fari á versta veg. Sumir upplifa martraðir, orkuleisi eða að þeir missi tengingu við eigin kraft og ljós. Í andlegum kenningum er talað um að markmiðið sé að halda manneskju fasti í lágri tíðni svo hún nái ekki að vaxa andlega eða sjá eigin styrk.Margir trúa því að því meira ljós sem einstaklingur ber í sér, því meiri andleg átök geti hann upplifað. Þess vegna leggja margir áherslu á að vernda orkuna sína með hugleiðslu, bænum, orkubreinsun og því að forðast neikvæð áhrif. Einnig er talað um mikilvægi þess að hlusta á innsæið sitt og styrkja tenginguna við sjálfan sig og jákvæða orku.Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? Komdu í áksrift:www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskriftd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskrift

Í þessum þætti segir Dagný okkur frá sinni mögnuðu lífsreynslu eftir fyrrilífs dáleiðslu og heilun hjá hinni mögnuðu Vigdísi. Það er ótrúlegt að heyra það sem hún upplifði í þessum tíma og hvað það hjálpaði henni mikið!Selma horfði á og ekki er það sýðri upplifun að vera vitni af svona fyrrilífs dáleiðslu og heilun. Það er magnað hvað sálin man og getur tekið með sér allskonar úr fyrrilífum inn í þetta líf sem við lifum núna og oft erum við að burðast með hluti sem við getum losnað við.Hlustaðu á þáttinn í fullri lengd og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Selma var í göngutúr í Hafnarfirði um helgina og varð hún og sunor hennar vitni að mjög undarlegum fljúgandi furðurhlut. Á himninum birtist hlutur sem hafði fyrst kassalaga form, en á nokkrum sekúntum áður en hún gat byrjað að taka upp video þá breytti þetta um form og varð hringur. Hreyfingar voru óvenjulegar og erfitt var að bera þær saman við hefðbundnar flugvélar, þyrlur eða dróna. Á köflum leit út fyrir að hluturinn afmyndaðist eða flökti, eins og hann væri ekki með fasta lögun.Í fyrstu var hún alveg viss um að þetta væri bara gasblaðra eða ruslapoki, en heilinn á okkur á það til að reyna að finna rökrétta útskýringu og efast um það sem maður er að sjá.Hvað sem þetta var á himninum þá var þetta fljúgandi furðuhlutur, mögulega ufo eða bara eitthvað sem á sér eðlilega skýringu eins og ruslapoki eða blaðra. En ef þið skoðið videoið og myndirnar þá hafa nákvæmlega svona furðuhlutir verið að birtast út um allan heim! Hvað haldið þið að þetta geti verið?Viltu enn meira yfirnáttúrulegt í líf þitt? komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:d+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift

Andleg vegferð er eitthvað sem flestir fara í gegnum á einn eða annan hátt, jafnvel þó fólk noti mismunandi orð yfir hana. Fyrir suma tengist hún trú, fyrir aðra sjálfsþekkingu, tilfinningum, lífsreynslu eða tengingu við hinn andlega heim. Andleg vegferð snýst í grunnin um að læra að skilja sjálfan sig betur og hjálpa við að finna innri frið.Oft halda margir að andlegt fólk þurfi að vera í hörklæðnaði, sitja í hugleiðslu allan daginn eða vera eins og jóga gúrú eða munkur. En andleiki snýst ekki um útlit eða ákveðinn lífsstíl. Maður þarf ekki að fylgja einhverri sérstakri ímynd til að teljast andlegur. Andlegur einstaklingur getur alveg verið venjuleg manneskja sem vinnur venjulega vinnu, hlustar á tónlist, hittir vini sína og lifir sínu daglega lífi.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift inn á:www.patreon.com/hidyfirnatturulega

Vatíkanið hefur lengi verið eitt dularfyllsta og áhrifamesta ríki heims, bæði vegna trúarlegs valds og sögulegrar arfleifðar. Sem miðstöð Rómversk-kaþólska kirkjan gegnir það lykilhlutverki í lífi milljóna manna, en jafnframt hefur það verið uppspretta fjölmargra samsæriskenninga og sögusagna í gegnum tíðina.Ein þekktasta kenningin snýr að leyniskjölum sem eiga að vera geymd í Vatíkanleyndarsafnið. Þar er talið að finna skjöl sem kirkjan vill ekki að almenningur sjái, til dæmis um raunverulegan uppruna kristni, mögulegar tengingar við utanjarðarlíf eða jafnvel sönnunargögn sem gætu kollvarpað hefðbundnum trúarkenningum. Þó safnið sé raunverulega til og innihaldi mikilvæg söguleg gögn, er aðgangur mjög takmarkaður, sem hefur ýtt undir vangaveltur og grunsemdir.Sumir halda því fram að Vatíkanið búi yfir leyndum þekkingum eða gripum sem tengjast yfirnáttúrulegum fyrirbærum. Þar má nefna sögur um „tímavél“ sem kallast Chronovisor, tæki sem á að geta sýnt atburði úr fortíðinni.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskriftwww.patreon.com/hidyfirnatturulegaMentioned in this episode:GaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurd+ypra ofan í yfiornáttúrulega áskriftGaldraboxVið erum með þrjá galdra til sölu á www.mistur.is Ástargaldur Hreinsunar og verndargaldur Manifest galdurKomdu í áskrift

Innsæi er oft eitthvað sem við upplifum sem svona „innri tilfinningu“ eins og lítil rödd eða gut feeling sem segir okkur hvað sé rétt eða rangt, jafnvel áður en við höfum hugsað málið almennilega í gegn. Sumir líta á innsæi sem eins konar tengingu við eitthvað meira en bara okkur sjálf eins og við séum að „túna okkur inn“ á stærri orku eða vitund. Þá getur innsæið birst sem sterk tilfinning, hugboð eða jafnvel tilfinning fyrir því að vita eitthvað án þess að geta útskýrt af hverju.Fólk sem vill styrkja innsæið sitt reynir oft að hægja á sér, vera meira í núinu og hlusta betur inn á við, til dæmis með kyrrð eða hugleiðslu. Þá verður auðveldara að greina á milli þess hvað er bara hávaði og hvað er þessi rólega, innri tilfinning.Vertu hluti af yfirnáttúrulega samfélaginu okkar og komdu í áskrift!www.patreon.com/hidyfirnatturulega